Two Twenty Represent
30.04.2008 08:14:08 / Team 220

Mótmælakúkur

það er verið að fara byggja skatepark í Hafnarfirði , og það verður opinn fundur kl 17:30 núna á miðvikudaginn í Víðistaðarskóla...EN íbúar í nárgenni við tilvonandi parks, eru búinir að safna undirskriftar lista um að þetta park verði ekki byggt..

þar af leiðandi þurfa allir að mæta á þennan fund til að sýna stuðning við parkið.

Sýnum samheldni og fáum þetta í gegn.!


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 21:14:53 / Team 220

Brettaferð erlendis!

Hej öllsömul og gleðilegt nýtt ár og allt það!

 

Það hefur blundað helvíti lengi í mér að fara á bretti erlendis enda fjöllin hér ekki búin að vera neitt neitt síðustu ár og er því að kanna það hér með hvort eitthvert ykkar kvikindina er tilbúið að tjékka á því með mér ?!

 

Sem hugmynd að áfangastað eru auðvitað alparnir og þá Austurríki - Sviss - Frakkland - Ítalía 

En svo er líka mikill hiti í mér að tjékka á Noregi og Svíþjóð !

 

Látið í ykkur heyra sem eruð geim og líka þið hin sem geta bent á töff staði!

 

Vagg og Velta

Íbbi Chronic 


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 10:28:48 / Team 220

Bláfjöll opna á morgun !!!

Bláfjöll opna nokkrar lyftur ná morgun  (laugardag) . . .

Frítt í lyftur..:


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 22:07:54 / Team 220

Snæfó um helgina!

Jæja hvað segja bændur um snæfellsnes um helgina?
Sopáin er eftirfarandi:
Hangir þurr um helgina á nesinu fyrir utan nokkra rigningardropa sem falla á laugardeginum (ekkert alvarlegt). Hægur N eða NNA vindur og sunnan swell með 8 sekúntu sveiflutíma (sem er gott).
Stefnan væri þá að fara á mogrun eftir vinnu og koma heim á sunnudegi.
Á föstudegi: er boðið upp á vökva fyrir þyrsta og miðnætur surf fyrir þyrstari.
Á laugardegi: er boðið upp á surf eftir behag (hentu) og sund í náttúrulegu sveitalauginni. (fólk má gleyma sundfötum).
Og svo stífa drykkju fram undir morgun.
Á sunnudegi: er boðið upp á bullandi þynnku og heimför með viðkomu í sveitapottinum sem er fullur af grænu slími og rúmar um það bil 5 manns. En reynt verður að slá heimsmet í að troða ofan í hann fólki;)
Hvað segiði um þetta gott fólk?
egill

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 18:29:55 / Team 220

Opið bréf!!!

02. febrúar 2007
| MGM

 

Ákall á Brettafélag Hafnarfjarðar

Á síðasta bæjarstjórnarfundi mínum kallaði ég á stofnun Brettafélags Hafnarfjarðar.

Afhverju? Ungmennaráð Hafnarfjarðar og hjólabrettaiðkendur hafa verið að kalla eftir bættri aðstöðu fyrir brettaiðkendur í Hafnarfirði. Í fyrra var settur peningur í verkefnið og hjólabrettarampur byggður uppí Áslandi. Einn slíkur er við Víðistaðarskóla og hefur verið lengi og fleiri rampar hafa verið að dúkka upp hér og þar um bæinn. En það er eitt að reisa ramp og annað að halda honum við og sinna. Því miður hefur umgengnin verið afar slæm á römpunum sjálfum og í kringum þá. Gunnar Þór Jónsson sem sér um eignarmál ÍTR segir að kostnaður við að setja upp aðkeyptan hjólabrettaramp sé um 3.5 milljónir. Því spyr ég, er skynsamlegt að setja niður hjólbrettaramp niður við hvern skóla í Hafnarfirði, þar sem hægt er að nota þá takmarkaðan fjölda daga á ári vegna veðurs og láta þá liggja undir skemmdum? Eigum við að hafa iðkendurnar afskiptalausa? Rannsókn og greining var að skila niðurstöðum sínum enn eitt árið og kemur þar skýrt fram, enn eitt árið að besta forvörnin gegn áfengis- og vímuefnaneyslu barna og unglinga sé skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf. Hvað er átt við með skipulagt? Jú, að það sé félagsleg yfirbygging á starfinu og að börnin og unglingarnir eru í virku starfi sem er stjórnar af leiðbeinanda líkt og íþróttaþjálfara, starfsmanni í félagsmiðstöð eða skátaforingja. Einnig segja rannsóknir að virkni og áhugi foreldra á frístundarstarfi barna sinna hafi mikið að segja þegar kemur að forvörnum og einnig brottfalli. Í Reykjavík var stofnað Brettafélag Reykjavíkur og er félagið í dag með aðgang að frábærri innanhúsaðstöðu þar sem iðkendur stunda áhugamálið sitt af metnaði. Hjólabrettið er ekki “bóla” sem deyr út um áramótin. Fyrsta hjólabrettið kom fram í Kaliforníu árið 1950 og er ekki hægt að segja að áhugin á íþrótt þessari sé eitthvað að fara að dvala. Hjólabrettið er komið til að vera. Því segi ég að skynsamlegasta leiðin til bættrar aðstöðu fyrir brettafólk er að stofna Brettafélag Hafnarfjarðar og ganga til samninga við Hafnarfjarðarbæ vegna bættrar aðstöðu (innanhúsaðstöðu). Það má heldur ekki gleymast að iðkendurnir eru hvað fróðastir í því hvaða aðstaða hentar þeim best. Einnig hægt að leita til fyrirtækja á bænum sem hafa mörg hver verið ötul við að styrkja íþrótta- og æskulýðsstarf í Hafnarfirði. Allir brettaiðkendur þarna úti, eldri og yngri, foreldrar og fleira áhugafólk: Stofnið Brettafélag Hafnarfjarðar!!.



 

Ég vill bara svara þessari ágætu konu sem skrifaði í gestabókina okkar og greinilega fulltrúa brettaiþkenda í bæjarstjórn:

 

Ég tel að allir þeir aðilar sem að ég þekki á brettum á Hafnarfjarðarsvæðinu munu ekki mótmæla slíkum aðgerðum, þ.e.a.s. að stofna brettafélag með félagsaðstöðu. Ég var sjálfur að vinna hjá ÍTR í Breiðholti þegar að sett var upp ein dýrasta hjólabrettaaðstaða landsins þar á bæ og tel að peningunum hafi ekki verið eytt á besta veg sem unt hefði verið. Þ.e.a.s. að kostnaður var mikill miðað við notkunargildi aðstöðunnar og er hún því auð stór hluta árs vegna bleytu eða kulda sem og aðrir hjólabrettarampar m.a. í Hafnarfirði.

 Hinsvegar tel ég það skyldu bæjarfélaga að styðja við bakið á því fólki sem stundar íþróttir sama hve fjölmenn hún er. Við vitum ölla að það hefur alltaf verið áhugi til staðar og ástundun hjá fjölda fólks en það hefur aldrei verið stigið skref til fulls til að efla eða styðja við bakið á þeim áhuga sem fyrir hefur verið. Maður hefur rekið sig oft á það í gegn um tíðina að það þýðir ekki að stíga hálft skref áfram líkt og hefur gerst í bláfjöllum, það hreinlega vantar snjó til að milljóna króna lyfta sé notuð. Það yrði sterkur leikur að úthluta brettafólki húsnæði og efni sem að síðan væri hægt að fá fólk til að smíða úr rampa upp á eigin spítur í samvinnu við fagaðila.

Það þyrfti ekkert frekar að kaupa rándýra tilbúna ósamsetta rampa að utan og á sama tíma og það myndi leiða til sparnaðar, myndi það einnig skapa virðingu manna fyrir hlutunum og búa til félagsanda líkt og í félagsmiðstöð.

Bærinn ætti síðan ekki að vera í vandræðum að skipa umsjónarmann svæðissins líkt og hefur verið gert annarsstaðar í kringum samskonar hluti eða félagsmiðstöðvar .

 

Ég vona svo sannarlega að af þessu verði og að einhver ábyrgur og faglegur aðili taki þetta verkefni að sér að stofna Brettafélag Hafnarfjarðar. Enda skiptir öllu að hafa mann með þekkingu og metnað yfir slíku verkefni svo það einfaldlega fari ekki út um þúfur.

Ég yrði pottþétt skráður meðlimur brettafélags í hafnarfirði og myndi vel getað hugsað mér að hafa aðgang að aðstöðu sem þessari innan Hafnarfjarðar og hugsa nú að ég tali ekki bara fyrir sjálfan mig.

 

Að lokum smá áróðursorð: Two Twenty er flaggberi Hafnfirskar brettamenningar.

 

egill


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 17:37:44 / Team 220

Helsti brimbrettastaður Íslendinga í hættu???

Þorlákshöfn í stórskipahöfn???
Já það er rétt, hugmyndir liggja fyrir um að stækka höfnina í Þorlákshöfn og breita henni í stórskipahöfn. Það myndi þýða það fyrir þá sem ekki vita að okkar langbesti brimbrettastaður á Íslandi og staður á heimsklassa mun fara til anskotans eða með öðrum orðum hreinlega eyðileggjast.
Ástæðan fyrir því er ekki mjög svo flókin enda getur hvaða heilbrigður maður sem þekkir til séð það á teikningunni hér fyrir neðan að varnargarður liggur þvert yfir staðin sem að öldurnar myndast. Takið eftir að fyrirhugaður varnargarður er beint úti af útsýnispallinum fræga sem er einmitt staðurinn sem að öldurnar eru hvað bestar yfirleitt.
 Þorlákshöfn afstöðumynd
V.S.
 
Ég vil þó benda á að enginn ákvörðun hefur verið tekin í sambandi við höfnina en hinsvegar skilst mér að þessi tillaga liggji fyrir!
 
Ég vona svo sannarlega að ekki verði af þessari stækkun og vona svo sannarlega að bæjarstjórn og hafnaryfirvöld Þorlákshafnar geri sér grein fyrir og virði hvaða afleiðingar þetta myndi hafa í för með sér fyrir okkur brimbrettafólk sem og fyrir íbúum þorlákshafnar sem að ég veit að eru fjölmargir sem leggja leið sína við útsýnispallin og dást að fegurðinni sem er þarna fyrir.
 
egill

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 20:27:36 / Team 220

Billabong Pro 07´


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 16:53:42 / Team 220

Myndir

Henti inn nokkrum myndum frá Chamonix/ france frá því í febrúar

check it . . . peace. . . 

-kv Manni


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 08:46:30 / Team 220

Ég Vill Fá ÖLDUSUNDLAUG!

Kanna á möguleika á snjóframleiðslu í Bláfjöllum

Íþrótta- og tómstundaráð samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær að óska eftir viðræðum við Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og OR um könnun á snjóveitu á skíðasvæðum í Bláfjöllum og Skálafelli til framleiðslu á snjó til að tryggja frekari rekstrargrundvöll skíðasvæðanna til framtíðar.

"Við viljum snúa vörn í sókn fyrir hönd skíðafólks á Íslandi," segir Björn Ingi Hrafnsson, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs. Bendir hann á að reynslan sýni að hægt sé að fjölga opnardögum til muna á skíðasvæðum með snjóframleiðslu. Spurður um kostnað við snjóframleiðslu segir Björn Ingi hugsanlega um einhverja tugi milljóna króna að ræða á ári. Segir hann það skynsamlega fjárfestingu ef hægt væri að fjölga opnunardögum.

"Það er búið að fjárfesta í uppbyggingu í Bláfjöllum fyrir hundruð milljóna, jafnvel meira, og það liggur núna ónotað nema einstaka daga sökum snjóleysis. Það er vond nýting á fjármunum. Við teljum að það geti orðið lyftistöng fyrir bæði skíðafólk og ferðaþjónustuna ef Bláfjallasvæðið, og mögulega Skálafell líka, getur aftur farið á fulla ferð, ef svo má segja."

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 06:29:45 / Team 220

NZ...

Jaeja, nu er dvol minni her i Nyja Sjalandi naestum lokid, eg flyg til baka til Sydney a morgun og verd thar thangad til eg flyg heim thann 5 eda 6 mars, er ekki alveg viss. Thad er vist ohaett ad segja ad Nyja Sjaland se land sem allir sem hafa ahuga a afsloppudu andrumslofti og godu surfi aettu ad heimsaekja. Eg er tho ekki naestum thvi buin ad skoda allt landid enda buin ad eida nanast ollum minum tima i smabae a vesturstrondinni sem heitir Raglan, baerinn er fraegur fyrir thad ad vera mjog tydur hvad vardar surf og inniheldur medal annars lengstu vinstri oldu i heiminum. Eg se tho ekkert eftir thvi ad hafa verid her allan timann enda a eg allt lifid fram undan til ad skoda restina af landinu sem eg mun gera. En eg hlakka ordid til ad koma heim og taka nokkrar oldur a klakanum og hitta ykkur folk. Hvernig er thad annars er ekki IPP a naesta leiti???

Kv. egill


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 01:34:04 / Team 220

Brettaferðir

Ég hef svona verið að velta því fyrir mér hvort við eigum ekki að reyna að taka brettaroadtrip og bústað í vetur ef við lenndum á einhverri massa snjóahelgi. Það væri t.d. töff að taka Dalvík og Hlíðarfjall og hressa bústaðarstemningu einhverra helgina eða eitthvað töff! Hvað segiði? Íbbi Chronic

» 16 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 11:32:23 / Team 220

mig vantar bretti

Mig vantar bretti er eithver að selja?

-kv Armando

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 12:44:56 / Team 220

Gleðilegann snjó cocksuckers...

jæja núna fara bláu fjöllin að opna.... mjög líklega um helgina...
 Hverjir eru game??


Ég var að spá í að fara til akureyrar helgina 19-21 jan.
Það eru margir að fara..s.s ég , félagar mínir úr gettónu og hópferð frá félagi tænifræðinema við Háskóla  Reykjavíkur. Sem mun slá upp balli ásamt öðrum skólum..
það verður sumsé mikið að gerast þá og gaman væri að sjá sem flest af ykkur þar

.. og ég minni á að það  það er nóg nóg!!af snjó í Hlíðarfjalli.:lol:

peace out!! 

kv Ármann Miðvík Halldórsson.

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 05:09:06 / Team 220

Split, doft og gengja!

Thad hefur annars lítid dregid til tídinda hjá okkur, nema ég og Jói ákvádum ad splitta í tvo sólarhringa. Thannig ad nuna er eg staddur einn a einhverju hosteli vid strondina i Byron Bay ad chilla, svo ad eg geti flogid til Nýja sjalands fljótlega:) Vid akvadum ad fara i sitthvora attina thar sem ad Joi vildi frekar gista i óbyggdunum, og eg félagsveran tharf bara ad fá minn skammt af fólki thó svo ad hann Jói minn sé nú hinn fínasti gaur;) Bara 60 dagar med einum manni og engum odrum yrdi bara of mikid. En vid skildum alveg sattir, enginn leidindi, thannig ad hann er sennilega á rúntinum núna í leit ad náttstad í óbyggdum og ég er eithvad ad húkka í tolvunni ad reyna finna mér ódýrt flug til Nýja Sjálands thann 25 jan eda thar um bil. Ég held ad thetta hafi bara verid god ákvordun hjá okkur og vid bádir sáttir med hana og vid ferdumst sídan saman thar til c.a. 25 jan og thá fer Jói á túnthokusýningu hugsanlega med pabba sínum og ég nonandi til NZ.

Annars er nú ekkert gaman ad skrifa eithvad blogg hérna thar sem ad madur veit ekki hvort ad thad sé nokkur kjaftur ad lesa thetta:) Takk Manni minn fyrir ad hugsa hlýlega til mín og ég skal reyna ad taekla nokkrar oldur fyrir thig á nýja 6'6" brettinu mínu "it is awsome"! Bid bara ad heilsa í bili og ég sé til hvort ég bloggi nú eithvad meira, ég veit ekki hvort thid eigid thad skilid;)

P.s. getur einhver sagt mér hvort ad Arana sé kominn heim frá USA?

egill


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 02:09:23 / Team 220

ástralía 5 mars.

Jæja þetta er búið að vera ansi mikið ævintýri, eftir 40 tíma ferðalag á gamlárs lentum við kl 22 á staðartíma og komumst að því að það var ekki til laus gisting í allri sydney, við (sváfum) á gólfinu á flugvellinum fyrstu nóttina og eftir lítinn sem eingann svefn á nýársdag þurftum við að fara taka lest, ferju og bus í norður hluta sydney til að finna hostel (gistingu). Seinni partinn fundum við síðan gistingu hjá einhverjum gaur sem að er á leiðinni til íslands á næsta ári og var alveg ólmur í að fá okkur, við eyddum fyrstu tveim nóttunum þar ásamt nokkrum bimbrettaköppum víðsvegar um heiminn, við höfðum síðan bókað gistingu til vonar og vara 4 jan á öðrum stað. Við erum því staddir þar núna og erum búnir að vakna síðustu þrjá morgna klukkan 6 til að fara surfa. En við keyptum bretti hér í norðurhlutanum áður en við redduðum gistinguni:)

Stefnan núna er tekin á að kaupa bíl en allir húsbílarnir sem við ætluðum að leigja eru upp-pantaðir til 16 jan og við ætlum okkur að vera farnir úr borgini fyrir þann tíma. Við erum búnir að prófa einn daihatsu charade sem var keyrður 280 þús og við gátum fengið hann fyrir 25000 kall. en við ákváðum að sleppa því, enda algjör drusla með ónýta stýrisenda, vantar einn dempara og hjólalegur að gefa sig á tveim stöðum.

Við erum samt á góðri leið að finna bíl og mjög líklegt að veið kaupum einn í dag eða á morgun:)

Hitinn hérna núna er 30° og sól og gott swell að koma inn um helgina og maður er farinn að spara kraftana núna þar sem að maður er eins og karfi í framan!

Ég er annars kominn með Ástralskt símanúmer sem að er: 0420756985 ég held samt að það þurfi að stimpla inn land númerið á undan. Ath. við erum 11 tímum á undan ykkur enda allt svo miklu þróaðara hérna:)

Hafið það gott!

egill


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Leitarbox